já.. .held að yfirskrift þessa dags sé bara einmitt það...
Byrjaði í morgun þegar ég hitti tvo vini í vinnunni sem standa mér svo nærri.... og er alltaf að átta mig á því betur og betur hvað mér þykir vænt um þessa tvo; markið og peruna.
Ein sumardís í vanda mætti svo á msn og ef hún getur ekki lyft manni upp á slökum og dimmum degi - þá getur það engin.
Dásan mín mætti svo til vinnu og þeyttist með mig út um allar tryssur í tilraun til að bjarga rólóvelli sem var orðin yfirfullur af börnum. Restina af deginum fekk ég svo að heyra allskonar konfektmolatóna, þar sem hún er einn af mínum uppáhalds skífuþeyturum.... eða meira svona youtubeuppfletturum og er ötul við að gefa tóndæmi.
Seinnipart dags átti ég svo að fara í kaffi til dönskunnar minnar, en þar sem ég hafði klúðrað að púsla deginum eins og ég hafði hugsað mér á koddanum í gær.... þá komst ég ekki í "annaðborðfráklukku" stelpuklúbbinn sem hafið sinn fyrsta hitting í dag. Þykir það ótrúlega miður, því ég hefði svooo viljað sjá skvísurnar og þau afkvæmi sem eru komin í heimin af þeirra völdum. Enn... vona að þetta sé fyrsti hittingur af MH píjum af mörgum og ég mun mæta næst...
Þegar ég kom heim, beið Tumalingur eftir mér. Tumi er hundur bróður míns og er óendanlega ástfangin af mér... enda er ég alltaf að draga hann með mér út að labba, sem hann elskar alveg. Ýkt gaman að fá svona (pínu skilyrta) ást....
Svo fór ég í afmælismatarboð til Ásdísar... mætti reyndar of seint, þar sem ég hafði eins og áður sagði, klúðrað púsli dagsins..... En þar fekk ég dýrindis mexícanskann mat og sjúklega sjúka súkkulaðiköku á eftir...
Dýrindis dagur, vel kryddaður af yndislegu fólki sem gefur lífinu lit.... .og ég heppin að eiga þau að

Later.