Knús í krús!!
ég um mig frá mér til mín
Hvassafell
Dagsetning
19. mars 2010
05.07.2008 13:08:00 / ingamagga

Tilfinningarússibani....

Síðasta vika búin að vera mjög tiflinningarík, skemmtileg, ruglingsleg, spennandi, gleðileg, leiðinleg, átakanleg og alveg ótrúlega lengi að líða.

En nú er komin laugardagur og þegar ég horfi til baka, þá finn ég að frasinn að á morgun muni allt líta betur út..... er alveg sannur. 

Á sama tíma og manneskja gengur inn í líf mitt, gjörsamlega óumbeðin, og opnar fyrir mér helling af hurðum og gluggum sem ég hélt að ég væri búin að harðlæsa og tryggja að engin kæmist í gegnum...... kemur upp heljarinnar drama í fjölskyldunni minni.  Fjölskyldan mín er nú reyndar alveg fræg fyrir að vera með dramatík 
En jæja, ég ætla frekar að biðja fyrir þessu en að vera að tuða um það hér.......  

Annars á Ásdís afmæli í dag :)  svo til lukku með það elsku vinkona.

Sumarið hálfnað og mín ekki komin í frí..... er komin í skrifstofuvinnu þar sem ég er að leysa af... og ég finn það svo hvað ég er heppin að vinna ekki þannig vinnu á veturnar... .þetta er alveg drepleiðinlegt.  Ég þarf að vera í aksjóninu, þarf að vera innan um fólk, vera þar sem fjörið er, ekki lokuð inn á skrifstou með síma og tölvu.  Ekki minn tebolli!!!  :)   Það sem er að bjarga mér eru fjörkálfar eins og Steini og Maggi og auðvitiað Ásdís sem kemur reglulega og skilur eftir gula pósted miða á tölvunni minni og dregur mig út....   en sumarfríið er handa við hornið og mikið agalega verður það gott :)

Later!!!

Gulur postIt skrifaði


http://hvolsskoli.ismennt.is/Vefir_nem/Smidja_06-07/H3/kolbrun/Bros%20hjarta.jpg
Bergrún skrifaði
Þú ert frábær !
en ég er í sjokki yfir einu !!!!
að Ásdís hafi sent slóð á mynd sem er í rauninni inni á Hvolsskóla síðunni ..
Það sýnir og sannar það sem ég hef svo oft sagt :) Hvolsvöllur er nokkurnveginn nafli alheimsins :D

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan
Dagsetning
19. mars 2010
Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 44128