Knús í krús!!
ég um mig frá mér til mín
Hvassafell
Dagsetning
22. mars 2010
21.09.2008 22:14:34 / ingamagga

Edrú - djamm...

Nei og ég er ekki ólétt.  Við Ásdís fórum á okkar mánaðarlega edrúdjamm í gær.  Reyndar afar langt síðan við höfum farið á svona vel heppnað edrú - djamm, en það var ógó gaman.  Fórum á Thorvaldsen og dönsuðum gat á skónna, tættum upp parketið, nudduðum af málninguna, slitum niður gluggatjöldin og skildum eftir mark okkar á staðnum :haha:

Fórum svo á trukkaball..... jább, kellurnar á hælum, í kápum og næstum því með uppsett hár, fóru á trukkaball.  Það var bara gaman, bara durgar og slagsmál og svona durgapíjur að pikka upp durga.  Við komum nú bara í endan á ballinu, ég að pikka upp minn durg og hún að kíkja á durgana :) 

Dagurinn í dag búin að vera agalega mikil afslöppun.  Vöknuðum, ég fór að læra, fórum á KFC og svo í búð, heim að kjafta við aðra fjölskyldumeðlimi, ég að læra og prjóna smá og svo náttúrulega það sem búið er að bíða eftir í allt sumar - Dagvaktin.  Verð að segja að ég varð fyrir smá vonbrigðum....... enn ætla að gefa þessu sjens. 

Keyri um þessa dagana á bláum jeppa - meira svona tryllitæki.  Jólabíllinn er á leið til læknis...verð vonandi komin á hann fyrir mánaðarmót.  Pústið fór einhverstaðar í Norðlingaholtinu á leið minni til vinnu á Grafarvogsdaginn.  Ég fer með hann til Hafnarfjarðar á morgun í viðgerð - bara svona ef þið skilduð heyra eitthvað skrýtið hljóð.... þá er það sennilega bara ég og Jóli :)

 

Later!!!

Alda skrifaði
Heyrðu góða mín, mig fer að þyrsta í fréttir af þér.....

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan
Dagsetning
22. mars 2010
Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 44155