Gaman að fá skammarkomment inn á bloggsíðuna um að maður sé latur að skrifa... ég var eiginlega farin að halda að það væri aldrei neinn að skoða þetta, bara ég í mínum ego-heimi, ennþá að trúa því að heimurinn snúist um mig og að ég sé svo ómissandi liknur í þessu öllu saman og nauðsynlegt fyrir mig að halda skrá yfir mitt litlausa, en þó ekki svart/hvíta líf.
Það svona helsta í fréttum er að maður er farin að spara. Þýðir ekkert annað svona í kjölfar kreppunnar. Ég fór nú samt og splæsti á mig voða fínni peysu og klút og næstum því nýjum skóm í gær. Annars er ég bara að vinna og vinna og vinna, er á námskeiði núna sem er voða spennandi og heitir Stóru spurningarnar. Já og svo auðvitað Kennó, sem er alveg að gera útaf við mig þessa dagana. Það er nákvæmlega allt búið að klúðrast sem klúðrast getur í mínum málum í skólanum. Skráningar að týnast, ég skráð í vitlausa áfanga, gleymist að gera aðgang fyrir mig - bara að nefna það, það er búið að gerast. Ég er alveg að verða crazy á þessu. Enn, ég talaði við einn kennara í dag og vonandi er þetta allt að fara að lagast. Ætla samt að tala við námsráðgjafann, og hreinlega kvarta. Finnst ógó asnalegt að vera að kvarta... en kommon, þetta er búið að vera algjört djók í brók....
Annars er ég bara góð. Sit núna akkúrat og er að læra

og Óttar var að koma með súkkulaði og topp handa mér. Frekar dekruð, en það er bara gaman
Styttist í jólin, svo í páska og svo bara í sumarið ....
Later!!!