Knús í krús!!
ég um mig frá mér til mín
Hvassafell
Dagsetning
21. mars 2010
05.12.2008 09:51:42 / ingamagga

lélegasti bloggari lansdins mættur

Já... þá er maður mættur.  Fyrst að ég mundi lykilorðið inn, þá ákvað ég að senda smá skeyti með helstu upplýsingum.

Lífið gæti ekki verið yndislegra þessa dagana.  Snjórinn að falla úr himnum, sem er mun betra en bara gráa frostið.  Ef það fylgir smá snjór þessum kulda, þá verður einhvernveginn samt ekki eins kalt.... skrítið.  En já, svo er ég búin í prófunum, sem er ekki leiðinlegt.  Og í fyrradag var ég að þjóna í Fíló á tónleikum hjá gospelkórnum.  Það var bara æði.  Jónsi, Stebbi Hi og Guðrún Gunnars voru gestasöngvarar og voru alveg með þetta.  Kórinn stóð að sjálfsögðu undir sínu, enda bara snillingar á ferð. 

Næsta mál á dagskrá er að velja mér fög fyrir næstu önn í skólanum.  Ég er eitthvað voðalega úti að aka með þetta, enn þetta er eitthvað sem ég þarf að gera.  Svo þarf ég að halda jól... eiginlega fyrst að klára jólagafirnar, þær eru eiginlega of mikið að þvælast fyrir mér, ja og jólakortin!!!  En allavega svo er það íbúðarleit eftir áramót.  Núna er bara að duga eða duga, ekkert annað í boði.

Eigið góðan desember :)

Later!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagsetning
21. mars 2010
Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 44149