Já mín heldur betur búin að gera góða hluti í dag. Fór í ræktina í morgun, með geðveikan hausverk, en hafði það samt af. Kom svo heim og tók til, og kúrði inn á milli, enda bara góður dagur fyrir kúrerí. Fór svo í Smáralindina tli að finna mér gleraugu. Já kella ætlar að fá sér ný gleraugu, helst tvenn sko. Ég fann voða fín gleraugu í ProOptikal í Skeifunni og þau kostuðu um 20.000 krónur. Ég var samt ekki alveg nógu ánægð með hliðarnar, þar sem þær voru eitthvað voða spes. Ég fíla ekki svona áberandi hliðarspangir. Vill hafa þetta voða plane. Nema svo fór ég í dag í Smárann og fann gleraugu sem eru mjög svipuð og hin, nema flottari, helmingi dýrari og með svaka bling á hliðunum. Ég lét reyndar taka þau frá, en þá fæ ég bara ein gleraugu þar fyrir rúmar 40.000 krónur á meðan ég get fengið tvenn fyrir verð á einum í Pro - fyrir 27.000. Ég veit að allt segir mér versla í Pró, en hin eru ógó flott, en þá fæ ég ekki tvenn..... svo á maður að vera skynsamur og sætta sig við örlítið skemmtilegri gleraugu (erum bara að tala um smá) eða á maður að eltast við glisið og kaupa ein helmingi dýrari ??? Ætla að ákveða þetta á morgun.
Nema hvað. Þegar ég kom heim ákvað ég að ráðast á sokkaskúfuna mína sem er búin að valda mér hrikalegum martröðum í margar vikur. Mér tókst að grafa mig í gegnum hana og fann að það var hellingur af sokkapörum þarna ofaní. Fannst þetta allt vera bara single sokkar. Og fyrst að ég var svona dugleg, þá skipti ég líka um á rúminu mínu, svo það verður yndislegt að skríða uppí á eftir.
Helgin er semsagt bara leti - leti - leti og miklar gleraugnapælingar.
Later!!!!